Predikarasonur segir frá lífi sínu á nýrri plötu 15. júlí 2010 18:30 Sigurður Laufdal er tilbúinn með nýja plötu sem ber nafnið Barn síns tíma. Fréttablaðið/gva
Sigurður Laufdal tónlistarmaður er tilbúinn með nýja plötu sem kemur með haustinu. Sigurður er meðal annars þekktur fyrir þátttöku sína í raunveruleikaþættinum Bandinu hans Bubba fyrir tveimur árum og sem sonur Ómega predikarans Guðlaugs Laufdal. „Þessi plata er eiginlega ég að segja frá síðustu tíu árum í mínu lífi með tónlistinni," segir Sigurður og bætir við að hann sé mikill unnandi ljóðlistar og semji mikið í tómstundum. Platan, sem ber heitið Barn síns tíma, er hans aðferð til að koma ljóðunum frá sér. Sigurður semur tónlistina og textana sjálfur. Sigurður er gítarleikari en við gerð plötunnar fékk hann góða menn til liðs við sig. Þetta er fyrsta platan sem hann gefur út en Sigurður vakti athygli árið 2006 fyrir lagið Í frelsarans nafni þar sem hann notaði sín eigin orð til að túlka Biblíuna. Vakti það einna helst athygli vegna þess að faðir hans er Guðlaugur Laufdal sem predikar Guðs orð á sjónvarpsstöðinni Ómega með gítarinn við hönd. Það lag er samt ekki að finna á plötunni. „Það má eiginlega segja að ég semji eitt lag á ári en á plötunni eru ellefu lög," segir Sigurður og segir að þau fjalli öll um hluti sem hann hefur lent í og karaktera sem hann hefur hitt á seinustu tíu árum. Sjómennskuna sem fór illa í hann og ástina sem hann hefur upplifað. „Ég er með margar góðar sögur. Eitt lagið er til dæmis til Bubba Morthens. Það lag heitir Grafhýsi frægðarinnar en það sagði Bubbi við mig þegar hann rak mig úr öðrum þætti seríunnar. Hann ætlaði að setja mig í grafhýsi frægðarinnar og sagði að ég væri bara lítill sætur strákur í leðurbuxum í fjölmiðlum eftir á," segir Sigurður og bætir við að hann sé nú ekkert ósáttur við Bubba. Hann vilji samt sýna Bubba að það sé meira í hann spunnið en það sem kom fram í þáttunum. „Ég vil að aðrir geti tengt sig við það sem ég er að semja og syngja um," segir Sigurður að lokum.
Mest lesið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Tónlist Greta Salóme á von á sínu þriðja Lífið Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Lífið Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Lífið Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Lífið Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Sindri gerðist trukkabílstjóri Lífið Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Lífið Fleiri fréttir Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Sjá meira