Há áfengisgjöld sliga Karamba 15. júlí 2010 09:30 Æ Karamba! María Hjálmtýsdóttir eigandi Karamba verður að loka dyrum staðarins um helgina og hún og starfsfólkið eru mjög ósátt. Fréttablaðið/Anton „
Starfsfólkið grét þegar við tilkynntum að við gætum ekki haldið áfram rekstri," segir María Hjálmtýsdóttir eigandi skemmtistaðarins Karamba sem lýkur starfsemi sinni eftir helgina. Staðurinn hefur verið starfræktur í eitt og hálft ár á horni Laugavegar og Klapparstígs og notið vinsælda í skemmtistaðaflóru miðbæjarins. „Það eru aðallega há áfengisgjöld og há leiga sem eru að gera út af við okkur. Við erum búin að reyna okkar besta í að halda áfram á þessum stað en það gengur því miður ekki," segir María og bætir við að það sé ekki auðvelt að vera í bar- og veitingahúsabransanum í dag. „Áfengisgjöldin eru svimandi há. Ég var til dæmis að kaupa áfengi núna áðan fyrir helgina og um helmingurinn af upphæðinni sem ég borgaði voru gjöldin og virðisaukaskattur," segir María. Þegar leigan í miðbænum hækkaði var ljóst að rekstur Karamba mundi ekki standa undir sér. „Það má kannski segja að það sé verið að henda okkur út." María segir að starfsfólkið sé mjög ósátt og reitt en flestir hafa verið að vinna á staðnum síðan hann opnaði. „Við erum eins og einn stór vinahópur og þeir sem eru staddir í útlöndum núna hringdu grátandi í okkur. Trúðu ekki að við værum að loka um helgina." María er ósátt við hvernig komið er fram við rekstraraðila öldurhúsa og að það sé ekki mikið sem situr eftir í kassanum eftir að öll aukagjöldin eru borguð. „Við höfum líka fundið fyrir því að fólk hefur minnkað komur sínar niður í bæ um helgar. Fleiri eru farnir að vera bara heima í partíum vegna þess að við verðum að hækka verðið á barnum í samræmi við kostnað," segir María en hún lokar ekki fyrir það að staðurinn Karamba muni opna aftur á öðrum stað.
Mest lesið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Bíó og sjónvarp „La La Höndin“ úr sögunni Lífið Ali G snýr aftur Bíó og sjónvarp Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Lífið Fleiri fréttir Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Sjá meira