Eyjafjallajökull: Icelandair breytir áætlun fyrir morgundaginn 9. maí 2010 13:21
Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugi á morgun, mánudaginn 10. maí, vegna áframhaldandi óvissu um hvort Keflavíkurflugvöllur verður opinn fyrir flugumferð. Í tilkynningu frá félaginu segir að miðað við spár sé nú gert ráð fyrir að flug verði komið á áætlun á þriðjudagsmorgun. „Tengistöð millilandaflugsins til Bandaríkjanna og Evrópu verður í Glasgow á morgun, líkt og í dag og í gær. Sérstök flug eru síðan sett upp á milli Glasgow og Akureyrar fyrir farþega sem eru annað hvort að koma til Íslands eða fara frá landinu og eru rútuferðir í boði frá BSÍ," segir ennfremur. Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir að þrátt fyrir að um sé að ræða mikla röskun fyrir þúsundir farþega hafi þeir verið þolinmóðir, skilningsríkir og „almennt þakklátir fyrir að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til þess að tryggja að þeir komist til síns áfangastaðar samdægurs." Guðjón segir að allt starfsfólk þjónustuvers Icelandair hafi verið kallað út til að sinna viðskiptavinum. „SMS sendingar, tilkynningar á vef félagsins, tölvupóstar og tilkynningar til fjölmiðla eru nýttar til að reyna að ná til þeirra um 12 þúsund farþega af fjölmörgu þjóðerni um allan heim, sem eiga flug með okkur þessa þrjá daga, þ.e. í gær, í dag og á morgun." Breytingarnar ná til alls flugs Icelandair á morgun, flug eru felld niður og ný flug sett upp í stað þeirra með tilliti til tengingarinnar í Glasgow. Þó er stefnt að því að flug til Boston undir kvöld á morgun verði frá Keflavíkurflugvelli. Farþegar eru hvattir til að fylgjast með á heimasíðu félagsins.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Innlent Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi Innlent Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Innlent Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Erlent Fleiri fréttir Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Óvenjulegt fyrir göngufólk og sannkallað Spánarveður Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Lokametrarnir á Alþingi og veðurblíða um allt land Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli „Við erum bara happí og heimilislaus“ Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum Sjá meira