Sundhöll minninganna 23. september 2010 11:00 Steindór og Héðinn framleiða myndina ásamt Brynhildi Birgisdóttur. Héðinn heillaðist af tímaleysi Sundhallarinnar, allir morgnar eru eins og sumar fastagestanna hafa sótt Sundhöllina frá því að hún var opnuð. Fréttablaðið/Stefán
Tíminn er eins og vatnið, orti Steinn Steinarr. Það á óvíða betur við en í Sundhöll Reykjavíkur, þar sem sömu fastagestir hafa vanið komur sínar svo áratugum skiptir. Um þá fjallar heimildarmyndin Höllin, sem verður frumsýnd í Sundhöllinni á laugardag. Framleiðendur myndarinnar eru Steindór Gunnar Steindórsson, Brynhildur Birgisdóttir og Héðinn Halldórsson, sem að auki leikstýrir og skrifar handritið að myndinni. Þeir byrjuðu á myndinni í janúar 2009, báðir nýkomnir að erlendis frá. „Steindór var að koma frá Mósambík og ég frá Danmörku," segir Héðinn. „Og við vorum að leita að einhverju skemmtilegu verkefni. Þetta var hugmynd sem hafði lengi blundað í mér, ég er sjálfur fastagestur í Sundhöllinni og bý á næsta götuhorni. Við byrjuðum á því að athuga hvort það væri mögulegt að fá styrki til að hrinda þessu í framkvæmd; það reyndist vera og eftir það fór boltinn að rúlla." Í myndinni er fylgst með daglegu lífi gesta og starfsfólki Sundhallarinnar á tveimur köldum vetrardögum og tveimur björtum sumardögum. Héðinn eyddi miklum tíma í undirbúningsvinnu en myndin var tekin í tveimur lotum á um það bil tíu dögum. Á þeim tíma tóku þeir Steindór um 25 klukkustundir af efni, sem þeir grisjuðu niður í um 52 mínútna heimildarmynd. Héðinn segir gesti og starfsfólk greinilega bera mikla virðingu fyrir húsinu og það sé mikil samkennd innan hópsins. Sjálfur hafi hann fyrst og fremst heillast af tímaleysi Sundhallarinnar. „Allir morgnar eru eins; þetta er sama fólkið sem mætir og allir eiga sín sæti. Þetta er eins og hálfgert ritúal. Það eina sem breytist er að fólk fellur frá og hópurinn minnkar. Þetta voru því eiginlega síðustu forvöð til að fanga þessa stemningu, meðan fastagestirnir sem hafa stundað sundlaugina allt frá því hún opnaði á fjórða áratugnum, eru enn á lífi." Höllin verður frumsýnd í Sundhöllinni á laugardagskvöld klukkan 20 og gefst kostur á að vera ofan í lauginni meðan á sýningu stendur. Sýningartími myndarinnar er 52 mínútur. Myndin verður jafnframt sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Riff, sem hefst 23. september. bergsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira