Lífið

Lopez lofar að haga sér vel

Jennifer Lopez. MYND/Cover Media
Jennifer Lopez. MYND/Cover Media

Jennifer Lopez hefur lofað að láta ekki eins og dekurrófa með frekjustæla, eða díva eins og það er kallað, þegar hún dæmir í næstu þáttaröð American Idol.

Jennifer, sem hefur samþykkt að setjast í dómarasætið ásamt söngvaranum Steven Tyler og upptökustjóranum Randy Jackson, sem situr enn sem fastast í sínu sæti, hefur lofað að vera þæg.

Blaðamannafundur var haldinn í gær þar sem nýjir þungavigtadómarar, Jennifer og Steven, voru kynnt til sögunnar.

„Ég hef gríðarlega mikla reynslu af tónlistarbransanum," sagði Jennifer á blaðamannafundinum og bætti við: „Ekki hafa áhyggjur. Ég á eftir að standa mig og haga mér vel."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.