Vildi ekki bögga Eið Smára 23. september 2010 07:00 Róbert er forsprakki hljómsveitarinnar Ég sem hefur gefið út plötuna Lúxus upplifun. Fréttablaðið/GVA „
Þetta er búið að vera ótrúlegt ferli," segir Róbert Örn Hjálmtýsson um gerð nýjustu plötu hljómsveitarinnar Ég, Lúxus upplifun. Hún kemur út á Gogoyoko.com í dag og verður fáanleg í búðum á næstu dögum. Fimm ár eru liðin síðan Plata ársins með Ég kom út við góðar undirtektir. Hún var einmitt tilnefnd sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, fyrir lag ársins (Eiður Smári Guðjohnsen) og fyrir besta myndbandið (Kaupið plötu ársins). „Það er langt síðan lögin voru samin en maður hefur bara hætt við útgáfuna út af alls konar atriðum. Til dæmis átti enginn meðlimur Ég barn, en núna eru sex komin og eitt á leiðinni. Svo eru líka alls konar menn sem ætluðu að gefa plötuna út en hættu við," segir Róbert Örn. Hann fékk á sínum tíma vin sinn Eið Smára Guðjohnsen til að styrkja útgáfu Plötu ársins en ákvað að endurtaka ekki leikinn vegna Lúxus upplifunar. „Ég var ekkert að bögga hann í þetta skiptið. Ég truflaði hann örugglega síðast. Hann byrjaði ekki að skora mark fyrr en platan var komin út." Róbert er sannfærður um að Lúxus upplifun sé besta plata Ég til þessa. „Því það eru textar við allt saman. Mig langaði að prófa að gera plötu þar sem eru hefðbundin lög, ef svo mætti segja, en á gömlu plötunni var anað úr einu í annað. Maður hefur fullt að segja. Ég vil vera einu stigi fyrir ofan og fara svolítið út úr boxinu." Næstu tónleikar Ég verða á Venue í kvöld ásamt hljómsveitinni The Way Down kl. 22 og er aðgangur ókeypis. - fb Á YouTube er hægt að horfa á lagið Sjónvarpið gæti selt okkur skít af Lúxus upplifun.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira