Falskur sáttatónn stjórnarandstöðunnar 4. janúar 2010 22:52 Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar. „
Vill fólk fá þetta lið við stjórnvölinn – aftur – sama liðið og ber ábyrgð á Icesave-ósómanum? Sama liðið og klessukeyrði samfélagið og skuldsettu íslenskan almenning upp í rjáfur?“ spyr Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, í pistli á heimasíðu sinni í kvöld. Hann segir að sáttatónn stjórnarandstöðunnar í Icesave málinu sé falskur. Björn segir að sæmileg samstaða hafi náðst um málið á Alþingi í sumar. Fjárlaganefnd hefði afgreitt málið svo til einhuga úr nefndinni. „En þegar á reyndi hljóp stjórnarandstaðan frá málinu og neitaði að styðja það allt til enda. Þannig varð stjórnarandstaðan til þess að kljúfa þing og þjóð upp í tvær fylkingar í stað þess að nýta tækifærið til að sameinast. Það hefði orðið annar bragur á málinu ef þingheimur allur hefði stutt málið eins og það lá þá fyrir," segir þingmaðurinn. Björn segir að það hafi ekki verið nema von að stjórnarandstöðunni hafi ekki verið boðið að koma að borðinu þegar viðræður við Breta og Hollendinga hófust að nýju í haust. Enda hafi viðbrögð forystumanna stjórnarandstöðunnar við niðurstöðum þeirrar viðræðna verið á einn veg. Þeir hafi sagt að þeir myndu ekki koma að málinu eða styðja það með nokkrum hætti. „Ábyrgð stjórnarandstöðunnar á þeirri óeiningu sem nú ríkir í þjóðfélaginu vegna þessa máls er því óumdeild og hafin yfir allan efa. Sáttatónn þeirra var falskur frá fyrsta degi. Þeirra er ábyrgðin og þannig hafa þau skrifað sína pólitísku sögu, sem óábyrg stjórnmálaöfl sem brugðust þjóð sinni á einum erfiðustu tímum í sögu lýðveldisins,“ segir Björn.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira