Innlent

Bubbi spilaði Stál og hnífur á árshátíð Bónus - Jóhannes tók ekki undir

Bubbi Morthens tók lagið fyrir árshátíðagesti Bónus. Hann hitti þó ekki Jóhannes.
Bubbi Morthens tók lagið fyrir árshátíðagesti Bónus. Hann hitti þó ekki Jóhannes.

Tónlistamaðurinn Bubbi Morthens spilaði lagið Stál og hnífur fyrir starfsmenn Bónus í gærkvöldi en árshátíð verslunarinnar fór fram í samkomusal í Valsheimilinu.

„Ég sá nú bara prúðbúið fólk sitja við borð," svarar Bubbi Morthens spurður hvort Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, hafi tekið undir með gamla verkamannaslagaranum sem er löngu orðinn sígildur á meðal vinnandi manna.

Bubbi segist hafa spilað þrjú lög og gefið eiginhandaráritanir í kjölfarið, „en ég hitti engar kanónur þarna, bara fólkið á gólfinu," segir Bubbi en um 200 til 300 manns voru á árshátíðinni.

Spurður hvort hann hafi haldið tölu yfir starfsmönnunum, en Bubbi hefur vakið mikla athygli á bloggi sínu á Pressunni þar sem hann gagnrýnir Davíð Oddsson oft harkalega - en sumir gætu haldi því fram að Davíð væri höfuðandstæðingur Jóhannesar og sonar hans Jóns Ásgeirs - svarar Bubbi að hann messi aldrei á árshátíðum.

„Það væri rosalegt. Ég verð að draga mörkin einhverstaðar," segir Bubbi sem játar að hann taki einarða afstöðu með Jóhannesi í Bónus.

„Ef ég ætti að velja á milli Davíðs og Jóhannesar þá þyrfti ekki að spyrja að því í hvaða fylkingu ég færi í," segir Bubbi. Hann var engu að síður spurður af blaðamanni til þess að taka af allan vafa.

„Ég myndi synda yfir Viðeyjarsundið og fara til Jóa," segir Bubbi.

Þess má geta að Arion banki hyggst selja Haga í opnu ferli. Stjórnendum Haga verður leyft að kaup allt að 15% hlut í félaginu á sama verði og aðrir fjárfestar. Jóhannes Jónsson mun samkvæmt þessu eiga kost á að kaupa 10% hlut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×