Saksóknari ætti að sjá um skattrannsóknir 1. maí 2010 06:30 Fundarstjórinn Svala Ólafsdóttir sagði að næstu misseri yrðu prófsteinn á það hvort Íslendingum tækist að koma lögum yfir þá stóru og voldugu en ekki aðeins smælingjana.Fréttablaðið/gva
Algerlega fráleitt er að hafa saksókn efnahagsbrota á Íslandi á jafnmörgum höndum og raun ber vitni. Þetta sagði Jón Þór Ólason, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, í málstofu um efnahagsbrot á Lagadeginum 2010 sem fram fór í gær. Jón Þór benti á að hér væru starfandi efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra, sérstakur saksóknari, settir ríkissaksóknarar og skattrannsóknarstjóri. „Það vantar bara afar sérstakan saksóknara,“ bætti hann við og uppskar hlátrasköll viðstaddra. Þetta kerfi er of flókið og kallar á tvöfaldar rannsóknir, að mati Jóns Þórs, sem leggur til að sérstakur saksóknari og efnahagsbrotadeildin verði sameinuð, eins og raunar stendur til, og að skattrannsóknir verði einnig á sviði nýrrar stofnunar. Jón Þór velti jafnframt upp þeirri spurningu hvort nægilegri sérþekkingu á fjármála- og efnahagsbrotum væri fyrir að fara hjá íslenskum dómstólum til að þeir gætu tekið á málum vegna bankahrunsins. Einnig væri fyrirséð að vandamál sköpuðust þegar finna þyrfti sérfróða matsmenn og meðdómendur sem ekki væru vanhæfir vegna tengsla sinna við viðskiptalífið. Jón Þór nefndi einnig þá tilhneigingu manna sem sæta ásökunum um lögbrot að bera því við að þeir hafi misskilið lögin. „Það er hentimisskilningur,“ segir Jón Þór, og líkir málflutningnum við frægan frasa úr ranni sjónvarpspersónunnar Georgs Bjarnfreðarsonar. „Gráa svæðið er ekki til,“ segir hann, enda hvíli skylda á þeim sem starfa að viðskiptum sem sérfræðingar að kynna sér það hvort gjörningar þeirra standast lög. Jón Þór fjallaði einkum um skilasvik í fyrirlestri sínum. Einnig fluttu framsögur Jónatan Þórmundsson, prófessor emerítus, um umboðssvik, og Sigurður Tómas Magnússon prófessor um markaðsmisnotkun. Sagði Sigurður Tómas ýmislegt benda til þess að markaðsmisnotkun hefði átt stóran þátt í efnahagshruninu á Íslandi. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir höfðu legið ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Sjá meira