Ekta íslenskt þorrablót í London 5. mars 2010 02:45 bermúda Hljómsveitin Bermúda skemmtir á þorrablótinu í London á laugardagskvöld.
Þorrablót Íslendingafélagsins í London verður haldið á laugardagskvöld. Ekkert þorrablót var haldið í fyrra en nú hefur ný stjórn verið kosin í Íslendingafélaginu og áherslurnar að sama skapi breyst. „Það féll niður í fyrra en árin þar áður hafa þetta verið nokkur hundruð manna viðburðir. Það eru til sögur af því að fólk hafi verið að fljúga frá Íslandi til að koma á þorrablótið," segir Friðþjófur Þorsteinsson, formaður Íslendingafélagsins. Mikið var um að fólk úr fjármálageiranum sótti þorrablótið fyrir bankahrunið en núna hafa tímarnir breyst. „Við ákváðum í takt við tíðarandann að fara aftur í grunngildin. Mér skilst að þetta hafi verið orðnir síðkjóla- og árshátíðarviðburðir en núna erum við að reyna að breyta þessu í hefðbundið þorrablót með fjöldasöng og sveitaballi," segir hann. „Þetta er fyrst og fremst skemmtun fyrir samfélagið sem er til staðar hérna. Við viljum þjappa fólki saman sem er í London og okkar von í framtíðinni er að geta stækkað þetta en einbeitt okkur að því fólki sem er partur af samfélaginu." Um 140 manns hafa boðað komu sína á þorrablótið og er fyrir löngu orðið uppselt í matinn. Eftir að fólk hefur drukkið fordrykk í boði lögfræðistofunnar Logos og gætt sér á hefðbundnum íslenskum þorramat og bláberjaskyri í eftirrétt tekur hljómsveitin Bermúda við og leikur fyrir dansi. Gunnar Reynir Þorsteinsson, trommari Bermúda, er afar spenntur fyrir ballinu, enda verður þetta í fyrsta sinn sem sveitin stígur á svið í London. „Þetta verður gríðarlegt partí," segir hann.- fb
Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Í jólaskapi í júní Menning Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fleiri fréttir Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Sjá meira