Sýna í öllum veðrum og vindum 26. apríl 2010 05:00 Anna Bergljót Thorarensen, meðlimur í leikhópnum Lottu, segir afskaplega skemmtilegt að leika fyrir börn. Fréttablaðið/valli
Leikhópurinn Lotta var stofnaður árið 2007 og setur upp leiksýningar ætluðum börnum. Sýningarnar fara fram utandyra yfir sumartímann þar sem hópurinn notar umhverfið og náttúruna í sýningar sínar. „Við höfðum öll verið meðlimir í áhugaleikhúsum sem voru starfandi á veturna en vorum svo aktív að við gátum ekki hugsað okkur að leika ekki neitt á sumrin og ákváðum að taka málin í okkar hendur og þannig varð leikhópurinn Lotta til," útskýrir Anna Bergljót Thorarensen, meðlimur leikhópsins Lottu. Leikhópurinn mun ferðast um allt land í sumar og setja upp leiksýningar en flestar munu þó fara fram í lítilli laut í Elliðaárdalnum þar sem hópurinn hefur sýnt undanfarin þrjú ár. Anna Bergljót segir leikhópinn ekki láta íslenska veðráttu hafa áhrif á sýningar og hafa þau aðeins þrisvar þurft að flýja inn í hús vegna veðurs. „Við sýnum úti í öllum veðrum en höfum þrisvar þurft að flýja inn og þá vegna áhorfenda. Við höfum lent í alls kyns ævintýrum á ferðum okkar og á Hellissandi fauk meðal annars leikmyndin um koll og svo höfum við lent í því að fuglar hafi verið að narta í leikmyndina okkar." Aðspurð segir Anna Bergljót það afskaplega skemmtilegt og gefandi að leika fyrir börn og segir nálægðina við áhorfendur gera starfið enn skemmtilegra. „Það er æðislega gaman að vera svona nálægt áhorfendum og hitta þá bæði fyrir og eftir sýninguna og spjalla við börnin. Í fyrra þegar við settum upp Rauðhettu þá lögðu aðeins hugrökkustu börnin í það að knúsa úlfinn að sýningu lokinni en önnur létu sér nægja að faðma bara Rauðhettu," segir hún og hlær. Fyrsta sýning leikhópsins fer fram í Elliðaárdalnum hinn 29. maí. - sm
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Fleiri fréttir Gagnrýni á John ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Sjá meira