Fríir tónleikar úti á götu stöðva umferð 13. júlí 2010 08:30 Lady Gaga hélt tónleika í miðri Rockefeller Center-húsaþyrpingunni.
Lady Gaga stöðvaði alla umferð í New York síðastliðinn föstudag þegar meira en 20.000 aðdáendur söngkonunnar troðfylltu göturnar til að sjá ókeypis tónleika hennar í rigningunni. Tónleikarnir voru liður í morgunþættinum The Today Show's Summer Concert Series og lék Lady Gaga lög á borð við Bad Romance og nýjasta lagið sitt, Alejandro. Gaga gladdi einnig aðdáendur sína með flutningi á nýju lagi sem ber heitið You and I, sem hún flutti uppi á flygli í miðri húsaþyrpingu Rockefeller Center, þegar himnarnir opnuðust og rigningin féll til jarðar. Söngkonan endaði tónleikana með því að þakka áhorfendum fyrir að hafa staðið þarna í regninu og kvaddi með orðunum: „Takk fyrir að láta drauma mína rætast. Rigni hann bara!" Aðdáendur settu upp búðir þar sem tónleikarnir voru daginn áður í þeirri von að geta verið á góðum stað á tónleikunum. Gaga launaði aðdáendum sínum hollustu þeirra við sig með því að láta færa þeim pitsu og vatnsflösku sem orkugjafa eftir að hafa eytt nótt á götunni. Á Twitter-síðu sinni sagði söngkonan: „Litlu skrímslin mín hafa nú þegar sett upp búðir fyrir utan tónleikastaðinn! Ég elska ykkur! Kem til með að senda ykkur pitsu og vatn í allan dag!" Þegar kvöld tók að nálgast bætti hún við: „Þúsund dýrmæt lítil skrímsli eru sofandi við tónleikastaðinn. Megi NY vaka yfir ykkur, og megið þið sofa undir stjörnunum. Amen."
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira