Skattkerfið dragi úr tekjutengingu bóta 22. júlí 2010 06:00 Unnið er að breytingum á skattkerfinu og gert er ráð fyrir að þær liggi fyrir um áramót. Skattar verða tekjutengdir en dregið verður úr tekjutengingum bóta. fréttablaðið/arnþór
Tillögur að nýju skattkerfi verða lagðar fram um áramót, ef allt gengur eftir. Um síðustu áramót var kerfinu breytt og tekið upp þrepaskipt kerfi. Þær breytingar voru kynntar til eins árs á meðan heildarendurskoðun færi fram. Sú vinna stendur yfir. Fjármálaráðherra skipaði nefnd til að endurskoða kerfið. Þar eru ýmsar hugmyndir uppi á borðum: þrepaskipting skatta og uppstokkun bótakerfis. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, segir góða samvinnu milli stjórnarflokkanna um málið og það sé á forræði fjármálaráðherra. Ráðuneyti hans á fulltrúa í nefndinni. Árni Páll segir að það hversu mörg skattþrepin verði þurfi að skoðast í samhengi við skerðinguna bótamegin. Ekki gangi að tekjutengja bæði skatta og bætur. Árni Páll segir það í samræmi við kerfið á Norðurlöndunum, þar sé tekjutengingin skattamegin, en ekki bóta. Horfa verði til þess að tekjutenging sé ein tegund skattlagningar. „Þá er grunnvinna í gangi varðandi nýtt barnatryggingakerfi sem tæki við af barnabótakerfi. Það ætti að mæta betur hag barnmargra lágtekjufjölskyldna og hvetja fólk til atvinnuþátttöku og auðvelda þannig leið út úr atvinnuleysi,“ segir Árni Páll. Þá er til skoðunar að koma á fót nýju húsnæðisbótakerfi, sem leysti af vaxtabætur og húsaleigubætur. Þá yrði komið á fót einu húsnæðisbótakerfi óháð því hvort menn kaupa eða leigja. „Það lá alltaf fyrir að um næstu áramót yrði lagt fram nýtt kerfi sem yrði endurskoðað í heild sinni og við stefnum að því. Við viljum kerfi sem styður enn frekar en nú við þær fjölskyldur sem eiga á hættu að lenda í fátæktargildrum og mæti betur framfærsluþörf vegna barna og húsnæðis.“- kóp
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Innlent Goddur jarðsunginn Innlent Fleiri fréttir Ók bifreið utan í þrjár aðrar á gatnamótum „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir Sjá meira