Regnboganum verði breytt í menningarmiðstöð 19. apríl 2010 05:00 Ari Kristinsson segir íslenska kvikmyndagerðarmenn og áhugafólk um evrópskar kvikmyndir og -sögu hafa mikinn áhuga á að bjarga Regnboganum frá lokun. Húsnæðið gæti nýst vel undir nokkurs konar menningarmiðstöð fyrir kvikmyndagerð.
Hugmyndir eru uppi um að koma Regnboganum til bjargar og breyta þessu eina kvikmyndahúsi miðborgarinnar í svokallað arthouse-kvikmyndahús með kaffihúsi, bókasafni, sérhæfðum kvikmyndasýningum og kvikmyndahátíðum, og kvikmyndasýningum fyrir skóla og ferðamenn. Kvikmyndamiðstöð Íslands er að flytja upp á aðra hæð Regnbogahúsnæðisins og sjá kvikmyndagerðarmenn og áhugafólk um sjálfstæða kvikmyndagerð þarna kjörið tækifæri til að sameina kvikmyndastarfsemina undir einn hatt. Ari Kristinsson, formaður SÍK, staðfestir í samtali við Fréttablaðið að miklar umræður hafi átt sér stað um framtíð Regnbogans. Kvikmyndagerðarfólk geti ekki hugsað þá hugsun til enda að miðborgin glati sínu eina kvikmyndahúsi. „Þetta gæti verið rétta arthouse-kvikmyndahúsið,“ segir Ari. Hann bendir á að stofnanir kvikmyndabransans séu frekar dreifðar, kvikmyndasafnið sé til að mynda í Hafnarfirði en í Regnboganum fengi það frábæra aðstöðu. „Þetta yrði miðstöð fyrir þessar óhefðbundnu kvikmyndir og ég tel að það sé alveg mögulegur rekstargrundvöllur fyrir slíkri kvikmyndamiðstöð. Þarna væri hægt að sýna gamlar íslenskar myndir, kvikmyndasögulegar myndir og svo þessar evrópsku myndir sem fá ekki alltaf brautargengi í hinum venjulegu kvikmyndahúsum. Þarna væri líka kominn kjörinn vettvangur fyrir kvikmyndahátíðir,“ segir Ari sem sér það fyrir sér að þarna yrði nokkurs konar menningarmiðstöð fyrir kvikmyndagerð. Ísleifur B. Þórhallsson hjá Græna ljósinu heldur til að mynda sína árlegu bíódaga næstu þrjár vikur. Hann segir það verða erfitt að halda slíka kvikmyndahátíð ef Regnboginn lokar. Hann viðurkennir að ákveðinna breytinga sé þörf og er sammála hugmyndum Ara um að koma á fót alvöru arthouse-kvikmyndahúsi líkt og þekkist í öðrum stórborgum. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Furðubandið sem tryllti netið Lífið The Streets koma fram á Iceland Airwaves Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Sjá meira