Hitti indverska framleiðendur 21. janúar 2010 05:30 sat hádegisverðarfund með forsetanum Grétar sat hádegisverðarfund með forsetanum og nokkrum indverskum kvikmyndagerðarmönnum í Mumbai. „
Við fórum þangað til að hitta framleiðendur og leikstjóra og kanna aðeins jarðveginn fyrir frekara samstarf. Hvað kemur út úr þessari ferð verður síðan bara að koma í ljós,“ segir Grétar Örvarsson tónlistarmaður, en hann var á Indlandi með forseta Íslands til að kynna landið sem hentugan vettvang fyrir indverska kvikmyndagerð. Eins og Fréttablaðið greindi frá síðasta sumar var Grétar indverskum kvikmyndagerðarmönnum innan handar þegar þeir komu hingað til Íslands til að taka upp tónlistarmyndbönd fyrir kvikmyndir sínar. Tveir hópar komu hingað til landsins með stuttu millibili og þær kvikmyndir eru annaðhvort á leiðinni í kvikmyndahús eða hafa þegar verið frumsýndar. Grétar hitti nokkra af helstu framleiðendum Mumbai ásamt Einari Tómassyni hjá Film in Iceland. Þá sátu þeir félagar hádegisverðarboð í Mumbai ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni og nokkrum kvikmyndagerðarmönnum. Þegar forsetahjónin héldu síðan til Delí fóru Grétar og félagar til Chennai þar sem þeir héldu Íslandskynningunni áfram. Grétar er bjartsýnn á að enn stærri verkefni gætu ratað hingað til lands, jafnvel frá sjálfri Bollywood, og segir að slíkt geti skipt sköpum fyrir íslenska ferðaþjónustu. „Lönd eins og Sviss sem indverskir kvikmyndagerðarmenn hafa nýtt sér að undanförnu hafa notfært sér þetta mjög mikið í auglýsingum sínum fyrir landið á Indlandi og þetta getur haft mikil áhrif á fjölda ferðamanna frá Indlandi hingað,“ segir Grétar.- fgg
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira