Skóli fólksins lítur dagsins ljós 23. apríl 2010 04:00 Kennir stenslagerð Þorgeir Óðinsson, grafískur hönnuður og tónlistarmaður, stendur fyrir Skóla fólksins ásamt unnustu sinni, Sigrúnu Lýðsdóttur. Fréttablaðið/valli
Þorgeir Óðinsson, tónlistarmaður og grafískur hönnuður, stendur fyrir námskeiði í stenslagerð sem fram fer í byrjun júní. Námskeiðið er á vegum Skóla fólksins, en Þorgeir stendur einnig á bak við hann ásamt unnustu sinni, Sigrúnu Lýðsdóttur. Að sögn Þorgeirs er hugmyndin að baki skólanum sú að fá fólk til að kenna skemmtileg námskeið og mun skólinn leggja til húsnæði undir kennsluna. Hann segir fólk hafa tekið vel í hugmyndina og að nú þegar hafi margir lýst yfir áhuga á að kenna ýmiskonar námskeið. Þorgeir vann mikið með stensla áður fyrr og segist hafa ákveðið að kenna slíkt námskeið til að koma af stað Skóla fólksins. „Stensill er mynd sem búið er að skera út og svo málar maður í gegnum myndina. Þó þetta sé mikið notað í götulist þá er einnig hægt að nota stensla á föt, veggina heima hjá þér, húsgögn eða jafnvel á bílinn þinn þannig það má nota þetta í ýmislegt. Námskeiðið tekur tvo daga, fyrri daginn verður farið í grunninn á stenslagerð og í seinni tímanum verður farið í flóknari útfærslur, svo sem að setja saman nokkra stensla eða vinna í nokkrum litum. Það getur hver sem er lært þetta, en það eru notaðir hnífar til að skera út þannig þetta hentar kannski ekki ungum börnum eða skjálfhentum,“ segir Þorgeir. Nánari upplýsingar má fá á Facebooksíðu Skóla fólksins. -sm
Mest lesið Emma Watson svipt ökuleyfinu Lífið Yngsti gusumeistari landsins Lífið Birta og Króli eiga von á dreng Lífið Íslensk hátíska úr fiskileðri slær í gegn í Vogue Tíska og hönnun „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Lífið Væri teiknimyndapersóna í fullkomnum heimi Tíska og hönnun Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Lífið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ Lífið Sjarmerandi raðhús í 105 Lífið Fleiri fréttir Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Riddarar kærleikans í hringferð um landið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugar Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Sjá meira