McDonald leggur flautuna á hilluna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. nóvember 2010 23:00 Úr leik í skosku úrvalsdeildinni. Nordic Photos / Getty Images
Dougie McDonald er hættur að dæma í Skotlandi en atvik sem kom upp í leik sem hann dæmdi fyrr í haust átti stóran þátt í því að dómarar ákváðu að fara í verkfall nú um helgina. Skoskir dómarar dæmdu enga leiki um helgina og voru því fengnir dómarar frá Ísrael, Möltu og Lúxemborg til að dæma leikina í skosku úrvalsdeildinni. Fresta þurfti þó einhverjum þeirra vegna veðurs. McDonald var mikið gagnrýndur vegna atviks sem átti sér stað í leik Celtic og Dundee United. McDonald hafði dæmt vítaspyrnu Celtic í hag en hann dró svo dóminn til baka. McDonald gerði illt verra með því að ljúga til um málsatvik í leikskýrslu sinni. Hann sagði að aðstoðardómari hans, Steven Craven, hefði ráðlagt honum að draga dóminn til baka en það var rangt. Raunin var sú að hann gerði sér fyllilega grein fyrir því sjálfur að dómurinn var rangur og það fékk hann svo staðfest hjá Craven. Aðstoðardómarinn hafi því engin áhrif haft á ákvörðun McDonald. Neil Lennon, stjóri Celtic, fór fram á afsögn McDonald á sínum tíma en dómarar fengu nóg og boðuðu til verkfalls. Þó ekki eingöngu vegna þessa máls heldur kvörtuðu margir dómarar undan þeirri meðferð sem þeir hafa mátt þola undanfarnar vikur og mánuði vegna starfa sinna á vellinum. Sumir hafa þar að auki fengið líflátshótanir frá stuðningsmönnum. En nú segir McDonald að hann vilji gefa öðrum dómurum svigrúm til að sinna sínu starfi og bætir við að með afsögn sinni sé áðurnefnt mál úr sögunni.
Fótbolti Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Modric skammast sín Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Fleiri fréttir Breiðablik - Þróttur | Geta sett aðra höndina á titilinn FH - ÍBV | Hafnfirðingar þurfa sigur Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjá meira