Lífið

Erfitt að sofa hjá vinkonu

Eitt atriði úr kvikmyndinni Black Swan hefur vakið eftirtekt en það er kynlífsatriði milli aðalleikkvennana Natalie Portman og Mila Kunis. Atriðið var ekki auðvelt fyrir leikkonurnar en þær eru góðar vinkonur.

„Það sem gerði senuna vandræðalega var að við erum svo góðar vinkonur. Það hefði verið auðveldara ef við værum ekki svona nánar. Síðan var það heldur ekki auðvelt að það vorum um 100 manns að horfa á,“ segir Portman í samtali við Huffington Post.

Black Swan fjallar um hinn harða heim ballettsins og leika þær tvær ballerínur sem keppast um athyglina.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.