Lífið

Þurfti að yfirgefa flugvél

Hnífur fannst í flugvel Paris Hilton en hún var á leið til Hawaii yfir hátíðirnar. 
Nordicphotos/getty
Hnífur fannst í flugvel Paris Hilton en hún var á leið til Hawaii yfir hátíðirnar. Nordicphotos/getty
Hótelerfingjinn Paris Hilton þurfti að yfirgefa flugvél vegna þess að hnífur fannst í vélinni. Hilton var á leið til Hawaii frá Losa Angeles ásamt kærasta sínum Cy Waitz.

Hilton var mjög brugðið vegna atviksins en hnífurinn fannst í sætisvasa vélarinnar og var öllum farþegum gert að yfirgefa flugvélina fyrir flugtak.

„Það er frekar hræðilegt að einhver hafi náð að smygla hníf um alla leið um borð í vélina án þess að vera stöðvaður,“ skrifaði Paris Hilton á Twitter síðuna sína en bætti svo við að hún hlakkaði mikið til að busla í sjónum á Hawaii yfir hátíðirnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.