Mið-Ísland gerir sjónvarpsþætti 24. desember 2010 10:00 Ari Eldjárn, Jóhann Alfreð, Bergur Ebbi og Dóri DNA mynda grínhópinn Mið-Ísland. Nú hefur leikstjórinn Ragnar Hansson gengið í lið með þeim og leikstýrir væntanlegum gamanþáttum.fréttablaðið/stefán „
Þátturinn á að vera ógeðslega skemmtilegur og eins fjölbreyttur og hægt er,“ segir uppistandarinn Ari Eldjárn. Ari og félagar hans í grínhópnum Mið-Íslandi, þeir Bergur Ebbi, Jóhann Alfreð og Dóri DNA, vinna nú ásamt Ragnari Hanssyni að nýrri gamanþáttaröð. Ari heldur utan um handritsgerðina sem allir í hópnum taka þátt í ásamt Ragnari sem mun leikstýra. Mystery Ísland framleiðir þættina en þeir verða átta talsins og munu bera nafn hópsins. Upptökur hefjast næsta sumar og munu fjórmenningarnir fara með aðalhlutverkin. Þættirnir verða sýndir á Stöð 2 og stefnt er að því að sýningar hefjist seint á næsta ári. Spurður hvort pláss sé á markaðnum fyrir nýtt grín segist Ari ekki þekkja hversu mettaður grínmarkaðurinn sé. „En ætli við teljum okkur ekki trú um að við séum að gera eitthvað sem hefur ekki verið gert áður og því sé gapandi svarthol á markaðnum,“ segir hann í laufléttum dúr, en bætir öllu alvarlegri við: „Ég vil ekki hafa nein gífuryrði um þáttinn því þetta er svo nýhafið hjá okkur en svona verkefni hefur verið draumur hjá okkur lengi þannig metnaðurinn er aldeilis til staðar.“ Ásamt því að vera einn vinsælasti uppistandari landsins hefur Ari fengist við handritaskrif síðustu misseri. Hann var í hópnum sem skrifaði þættina Hlemmavídeó og hefur þrisvar tekið þátt í að skrifa áramótaskaupið. „Fyrir mér er þetta fyrst og fremst handritsverkefni og áskorunin er að skrifa eitthvað sem er bæði spennandi og frumlegt.“ segir hann. Leikstjórinn Ragnar Hansson hefur talsverða reynslu af framleiðslu gamanefnis. Hann leikstýrði Sigtinu sem sýnt var á Skjá einum og nú síðast þáttaröðinni Mér er gamanmál sem sýnd var á Stöð 2. Þættirnir fjölluðu um afdrif Frímanns Gunnarssonar sem er leikinn af bróður Ragnars, Gunnari Hanssyni en ásamt honum hefur Ragnar unnið með grínistum á borð við Frank Hvam, Matt Berry og Jóni Gnarr. „Við ætlum að gera frábæran gamanþátt – vonandi tímalausan, þar sem sótt verður í eigin húmor og þaulreyndan húmor,“ svarar Ragnar spurður á hverju áhorfendur eigi von. „Mér líst vel á þáttinn því þetta er í fyrsta skipti sem ég leikstýri hópi þar sem allir eru yngri en ég. Ég held ég sé sá eini sem er vitlausu megin við þrítugt. Ég miðla mikilli reynslu til þeirra – ekki bara um þáttagerð heldur mun ég kenna þeim allt um býflugurnar og blómin. Ganga þeim í föðurstað.“atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira