Disney vill ekki sílikonbrjóst 27. mars 2010 10:46 Pamela er ekki lengur í tísku.
Stófréttir berast að vestan, en afþreyingafyrirtækið Disney hefur óskað eftir leikkonum í framhaldskvikmyndina Pirates Of The Caribbeans. Sem er í sjálfu sér ekki fréttnæmt, en fyrirtækið setur sem skilyrði að leikkonurnar séu með raunveruleg brjóst. Eðlilega tók Hollywood andköf þegar fregnirnar bárust að Disney hefði skorið upp herör gegn sílikonfylltum börmum en samkvæmt breska götublaðinu Daily mail er um einstæða byltingu að ræða. Þá er tekið dæmi að brjóstastækkanir í Bandaríkjunum hefur fækkað úr 365 þúsund á ári niður i 312 þúsund. Að auki hafa vinsælir þættir eins og Svanurinn (The Svan), sem gengur út á brjálæðislegar yfirhalningar kvenna með lítið sjálfsálit, verið slegnir af. Niðurstaðan er því skýr að mati Daily mail, brjóstastækkanir eru dottnar úr tísku; annar áratugur nýrra aldar er tími raunverulegra brjósta. Það sem meira er, sumar leikkonur og skemmtikraftar með grjótharða sílikonpúða eru farnar að fjarlægja þá til þess að mæta nýjum og breyttum tímum. Meðal þeirra er tískuljóminn Victoria Beckham sem kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að miskunnarlausum raunveruleika hátískunnar. Meira að það segja Sharon Osborne, sem er teygð og toguð til á allan mögulegan og ómögulegan hátt þökk sé ótrúlegri þekkingu læknavísindanna, segist sjá verulega eftir því að hafa fengið sér sílikonbrjóst. Sharon er frægust fyrir að vera dómari í raunveruleikaþættinum X-Factor, auk þess sem hún er gift rokksteikinni Ozzy Osborne. Tímaritið Playboy, sem virðist framkvæma hávísindalegar kannanir af og til, birtu sláandi niðurstöður á dögunum. Þar kom fram að karlmenn létu sig kannski dreyma um stórbrjósta ljóskur sem væru til í tuskið, en þegar kæmi að raunveruleikanum, þá vilja þeir raunveruleg brjóst. Í raun væru þeir nokkuð fráhverfir ofurfylltum börmum sem virðast geta slasað fullveðja karlmann fari hann ekki varlega. Að auki hefur leikkonan Scarlett Johannsen verið ítrekað kjörin kynþokkafyllsta kona veraldar. Í huga greinarhöfundar Daily mail er engin vafi á því hvers vegna hún er svo vel að titlinum komin; hún er nefnilega með raunveruleg brjóst.
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Fleiri fréttir Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Sjá meira