Lífið

Ástríðan er enn til staðar í Hljómalind

Varkár Helena Stefánsdóttir, einn eigenda Kaffi Hljómalindar, segist vera með augun opin fyrir nýju húsnæði en vilji þó ekki taka hvaða tilboði sem er.
Fréttablaðið/Stefán
Varkár Helena Stefánsdóttir, einn eigenda Kaffi Hljómalindar, segist vera með augun opin fyrir nýju húsnæði en vilji þó ekki taka hvaða tilboði sem er. Fréttablaðið/Stefán

Kaffi Hljómalind, sem þjónaði sem hálfgerð félagsmiðstöð fyrir fjölskyldufólk og ungmenni um árabil, hætti rekstri í október í fyrra. Ástæða þess var sú að Hljómalindarfólkið fékk ekki framlengdan leigusamninginn og missti því húsnæðið.

Helena Stefánsdóttir, einn eigenda Kaffi Hljómalindar, segir hópinn vera með augun opin fyrir hentugu húsnæði fyrir reksturinn. Hún segir hópinn jafnframt vera að leggja drög að reglugerð fyrir nýtt samvinnufélag sem mun reka kaffihúsið í framtíðinni.

„Það eru alls konar plön í gangi. Hljómalind var eignarhaldsfyrirtæki en var rekið sem samvinnufélag, nú ætlum við að taka þetta alla leið og hafa þetta löglega sem samvinnufélag. Við viljum hafa fjölbreyttari rekstur þegar við opnum aftur því hópurinn sem að þessu stendur er svo fjölbreyttur og áhugamálin mörg,“ segir Helena.

Aðspurð segir hún samvinnufélög sem þetta hafa ákveðinn tilgang og í þessu tilfelli sé það að hafa uppbyggileg og skapandi áhrif á umhverfið. Hún segir hópinn ekki tilbúinn til að leigja hvaða húsnæði sem er því þau vilji hafa svigrúm fyrir aukinni starfsemi líkt og námskeiðahald og verkstæði.

„Við höfum fengið margar fyrirspurnir frá gömlum viðskiptavinum sem vilja vita hvort Hljómalind verði ekki örugglega opnuð aftur. Það er gott að finna fyrir slíkum áhuga og stuðningi. Við erum rosalega varkár í allri ákvarðanatöku út af fyrri reynslu, en ástríðan er enn til staðar,“ segir Helena að lokum. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.