Lífið

Diddy kennir Monkeys

p diddy P Diddy ætlar að kenna bresku hljómsveitinni Arctic Monkeys að rappa.
p diddy P Diddy ætlar að kenna bresku hljómsveitinni Arctic Monkeys að rappa.

P Diddy ætlar að kenna bresku hljómsveitinni Arctic Monkeys að rappa. Diddy og Monkeys kynntust á síðasta ári og síðan þá hafa þeir verið óaðskiljanlegir.

Strákarnir eru á leiðinni til Bandaríkjanna á næstunni þar sem Diddy mun taka á móti þeim og kenna þeim leyndarmál rappheimsins.

„Við tölum við hann að minnsta kosti þrisvar í viku. Við ætlum að hitta hann í Miami eftir nokkrar vikur," sagði trommarinn Matt Helders. Svo gæti farið að Diddy og Monkeys semji lag saman en það á eftir að koma betur í ljós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.