Íslenskur bjór seldur í Kanada 2. mars 2010 05:00 ánægðir með samninginn Alan Bones, sendiherra Kanada á Íslandi, í Ölgerðinni ásamt forstjóranum, Andra Þór Guðmundssyni. „
Ég er bara þokkalega kátur en er alveg með báða fætur á jörðinni samt,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. Fyrirtækið setur á næstunni bjórinn Egils Gull á markað í Manitoba-ríki í Kanada í samvinnu við kanadíska fyrirtækið Fitumi Trading. Einnig er líklegt að bjórinn verði síðar meir seldur í Ontario-ríki í Kanada. Á báðum þessum stöðum er ríkissala eins og hér á landi og því frekar einfalt að ná þar góðri dreifingu. Að sögn Andra er stílað inn á Íslendingahefðina sem er ríkjandi í Manitoba. Auk þess eru íbúar Ontario sagðir sérlega móttækilegir fyrir nýjum bjórtegundum. „Alheimsbjórar hafa tekið svolítinn skerf af markaðnum þar, þannig að það er alltaf svolítil spenna fyrir nýjum bjór.“ Andri veit ekki betur en að Egils Gull sé fyrsti íslenski bjórinn sem verður seldur í Kanada. „Eitt af því sem við höfum fram að færa er að þetta er mjög umhverfisvænn bjór. Okkar brugghús er, að við teljum, með umhverfisvænustu brugghúsum í heimi. Allur varmi sem verður til við ölsuðuna og gerjunina er notaður til að bræða snjó á planinu. Allt hrapið sem fellur til af bygginu er notað í svínafóður og kolsýran sem annars myndi gufa upp og fara í andrúmsloftið er sett í tank og notuð í gosið okkar,“ segir hann. Kevin Kelly hjá Fitumi Trading Co. er hæstánægur með samstarfið við Ölgerðina. „Það er von okkar að þetta sé aðeins byrjunin og við viljum gjarnan leggja okkur fram um að kynna fleiri fyrsta flokks íslenskar vörur fyrir kanadískum neytendum,“ sagði hann. - fb
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira