Fox hafnaði Næturvaktinni 2. mars 2010 02:00 Ekki til ameríku Næturvaktin verður ekki endurgerð af Fox-sjónvarpsstöðinni en nú á að kynna þættina fyrir kapalsjónvarpsstöðvunum.
Sjónvarpsrisinn Fox ákvað að gera ekki prufuþátt eftir íslensku sjónvarpsþáttaröðinni Næturvaktin. Handrit eftir Adam Barr, handritshöfund Will & Grace, var tilbúið á teikniborðinu en Ameríkanar verða að bíða enn um sinn með að sjá sína eigin útgáfu af þeim Georg, Ólafi Ragnari og Daníel. „Við erum svolítið spældir að Fox skyldi ekki fara í prufuþáttinn en þetta „pilot-season“ er mikið nálarauga og við komumst ekki í gegn að þessu sinni,“ segir Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri Saga Film, sem framleiðir þættina. Þetta pilot-season sem Kjartan vísar til er tímabil hjá stóru amerísku sjónvarpsstöðvunum. Þá berast hverri stöð yfir þrjú þúsund hugmyndir að nýjum sjónvarpsþáttum en í kringum hundrað þeirra fara í handritavinnslu. Þegar handritið er tilbúið tekur við enn ein sían því aðeins fimm til sjö af þessum handritum verða að svokölluðum „prufu-þáttum“ eða pilot. Og loks eru það aðeins tveir til þrír slíkir pilotar sem fá samning um sjónvarpsþáttaröð hjá stöðinni. Kjartan og félagar hjá Saga Film eru þó með plan B því nú ætla þeir að kynna Næturvaktina fyrir kapalsjónvarpsstöðvarnar í Ameríku. „Þessi þættir henta í raun miklu betur fyrir kapalinn og þetta er miklu einfaldara ferli, hjá kapalsjónvarpsstöðvunum er ekkert sérstakt tímabil eins og hjá stóru stöðvunum en að sama skapi þýðir þetta líka minni peningar.“ -fgg
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves Sjá meira