Lífið

Skylda grínista að gera grín að Íslandi

Missteig sig hrapallega
<B>Davíð Þór</B> segir <B>Jón Bjarnason</B> hafa misstigið sig ansi hressilega með ummælum sínum. <B>Ari Eldjárn </B>á erfitt með að skilja af hverju landbúnaðarráðherra sé að tjá sig um svona mál.
Missteig sig hrapallega <B>Davíð Þór</B> segir <B>Jón Bjarnason</B> hafa misstigið sig ansi hressilega með ummælum sínum. <B>Ari Eldjárn </B>á erfitt með að skilja af hverju landbúnaðarráðherra sé að tjá sig um svona mál.

„Hann missteig sig ansi hressilega þarna ef hann lítur á það sem hlutverk sitt að segja grínistum að hverju má gera grín að og að hverju ekki," segir Davíð Þór Jónsson, guðfræðingur og grínisti.

Hann er undrandi á ummælum landbúnaðarráðherrans Jóns Bjarnasonar um auglýsingu Símans en Jón sagði símafyrirtækið gera lítið úr hefðbundnum íslenskum þjóðlegum afurðum.

„Nokkrir karlmenn, í lopapeysum þó, eru látnir fúlsa við íslenskum þorramat eins og um hvert annað ómeti sé að ræða," sagði Jón við setningu Búnaðarþings á laugardaginn.

Davíð segir það nánast heilaga skyldu íslenskra grínista að gera grín að íslensku samfélagi og íslenskum hefðum en vill ekki ganga svo langt að segja landbúnaðarráðherrann húmorslausan. „Nei, ég held að brandarinn hafi farið eitthvað öfugt ofan í landbúnaðarráðherrann, mín reynsla er sú að stjórnmálamenn leyni oft á sér en hann hefur örugglega bara verið að reyna að skora ódýr stig hjá markhópnum," segir Davíð.

Ari Eldjárn hjá grínhópnum Mið-Íslandi á erfitt með að skilja af hverju landbúnaðarráðherra sé að tjá sig um svona.

„En á landbúnaðarráðherra ekki einmitt að vera svona? Þýðir þetta ekki að tvær stéttir eru að standa sig ansi vel; grínistar að gera grín að íslenskum hefðum og svo landbúnaðarráðherra sem er reiðubúinn til að verja landbúnaðarvörur með kjafti og klóm. Ég held að ráðamenn megi bara taka landbúnaðarráðherrann til fyrirmyndar." - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.