Dánarbú gerir risasamning 17. mars 2010 02:00 michael jackson Tíu nýjar plötur með popparanum eru væntanlegar á næstu sjö árum á vegum fyrirtækisins Sony.
Dánarbú Michaels Jackson hefur undirritað stærsta plötusamning allra tíma við Sony sem tryggir því að minnsta kosti 200 milljónir dollara, eða um 25 milljarða króna. Upphæðin gæti hækkað í rúma þrjátíu milljarða króna ef ákveðin skilyrði verða uppfyllt. Samningurinn kemur sér einkar vel fyrir dánarbúið því Jackson skildi eftir sig miklar skuldir þegar hann lést 25. júní í fyrra. Samkvæmt samningnum verða gefnar út tíu plötur með popparanum á næstu sjö árum, þar á meðal ein með áður óútgefnum lögum og er hún væntanleg í nóvember. Einnig stendur til að gefa út DVD-mynddisk með öllum tónlistarmyndböndum popparans og endurútgefa Off The Wall, fimmtu hljóðversplötu hans sem kom út árið 1979. Áður en Jackson lést hafði hann einmitt lýst yfir áhuga á endurútgáfunni, þar sem nokkur óútgefin lög verður að finna. Sala alls konar varnings tengdum Jackson hefur rokið upp úr öllu valdi síðan hann lést og á síðasta ári var hann einn tekjuhæsti tónlistarmaður heimsins. Sony hefur selt um 31 milljón eintaka af plötum hans síðan í fyrra, þar af fimm milljónir eintaka af hinni tvöföldu safnplötu Is This It. „Á meðan Michael lifði setti hann ákveðin viðmið í tónlistarbransanum með samningum sínum,“ sagði John Branca, einn þeirra sem hefur umsjón með dánarbúinu. „Þessi tímamótasamningur við Sony Music sýnir hversu mikilvæg tónlist Michaels var.“ Rob Stringer hjá Sony var einnig ánægður með samninginn. „Við erum staðráðnir í að vernda arfleifð þessarar miklu goðsagnar og við erum ánægð með að geta haldið áfram að gefa heiminum tækifæri til að hlusta á tónlist hans í framtíðinni.“ Lát Jacksons hefur verið úrskurðað sem manndráp. Læknirinn Conrad Murray, sem meðhöndlaði hann með deyfilyfinu Propofol, hefur neitað ásökunum um að hann hafi valdið dauða hans.
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Sjá meira