Fyrst að fá bringuhár núna 17. mars 2010 05:30 Í svörtum fötum Lána ekki beislið, sýna bara hvar hesturinn er.
Hljómsveitin Í svörtum fötum er snúin aftur eftir þriggja ára hlé. „Við erum búnir að vera að spila síðan í fyrrasumar en þorum formlega að viðurkenna það núna," segir Jónsi söngvari. „Við erum farnir að semja tónlist eins og trylltir villimenn og gefum út safnplötuna Tímabil á næstu dögum með helstu verkum okkar frá liðnum árum. Þarna verða líka tvö ný lög, Ást í meinum og Leiðin heim. Sveitin er bókuð í allt sumar - „sem er frábært því við erum svo helvíti spilaglaðir," segir Jónsi. Hvað með samkeppnina frá ungu strákunum, eins og Ingó og Veðurguðunum. Eruð þið ekki orðnir alltof gamlir í þetta? „Nei, nei, við erum að toppa. Erum fyrst að fá bringuhár núna. En varðandi Veðurguðina þá erum við nú ekki búnir að lána þeim beislið, bara búnir að sýna þeim hvar hesturinn er. Við þurfum náttúrlega að sýna þeim hvernig á að gera þetta. Við stukkum inn á markaðinn þegar Land og synir, Sóldögg og Skítamórall voru aðal, en erum komnir á þann stað sem við erum á í dag, sem ég veit svo sem ekkert hver er. En að sjálfsögðu fögnum við nýliðun í bransanum, eins og til dæmis Hvanndalsbræðrum. Það eru sko almennilegir nýliðar, ekki búnir að spila nema tíu árum lengur en við. Tónlistarlífið væri náttúrlega eitthvað óeðlilegt ef við værum alltaf yngstir." Verður hart barist á sveitaballamarkaðinum í sumar? „Ekkert harðar eða linar en áður. Þetta er alltaf spurning um hver gerir skemmtilegustu lögin og hver er í mesta stuðinu. Ég tek þeirri áskorun. Ég skal snúa mig á höndum og fótum bara við að sjá fólkið á gólfinu glotta." - drg
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Fleiri fréttir Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Sjá meira