Lífið

Konudagurinn: Gera eitthvað fyrir hvort annað

„Það hefur samt aldrei verið nein rosaleg kvöð um að það verði að vera eitthvað stórkostlegt heldur eitthvað lítið sem segir manni að viðkomandi mundi eftir deginum er nóg."
„Það hefur samt aldrei verið nein rosaleg kvöð um að það verði að vera eitthvað stórkostlegt heldur eitthvað lítið sem segir manni að viðkomandi mundi eftir deginum er nóg."

„Við erum alveg glötuð hjónin hvað Valentínusardaginn varðar," svarar Ingibjörg Reynisdóttir leikkona spurð út í ástina og hvort hún og eiginmaður hennar hafi dekrað við hvort annað á Valentínusardaginn.

„Við fórum reyndar á Jómfrúnna og fengum okkur þetta fína smörrebrauð á danska vísu eftir góða sundferð en það var samt ekki endilega tengt við Valentínusardaginn sérstaklega. Við eigum þetta nú bara til svona annað veifið," segir Ingibjörg.

„Það er alltaf hægt að finna tilefni til að gera sér dagamun," segir Ingibjörg.

„Við erum föst í hinum íslenska sið konu- og bóndadeginum og gerum gjarnan eitthvað fyrir hvort annað þá."

„Það hefur samt aldrei verið nein rosaleg kvöð um að það verði að vera eitthvað stórkostlegt heldur eitthvað lítið sem segir manni að viðkomandi mundi eftir deginum er nóg."

„Það er alltaf hægt að finna tilefni til að gera sér dagamun eins og daginn sem maður hittist fyrst, afmæli, brúðkaupsdagar og svo bara hreinlega þegar maður er í góðu stuði fyrir það spontant," segir Ingibjörg.-elly@365.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.