Ældi og kvaddi þar með Lisbeth Salander 24. ágúst 2010 13:53 Noomi Rapace. MYND/Cover Media
Leikkonan Noomi Rapace, 30 ára, sem lék Lisbeth Salander, tölvuhakkarann í þríleik Stiegs Larsson, segir unglingsárin hafa verið hræðileg en hún flutti inn með þáverandi kærasta aðeins 14 ára gömul. Fyrir hlutverkið létti leikkonan sig, klippti hárið, byrjaði að reykja og lét gata sig á hinum og þessum stöðum á líkamanum því hún vildi líkjast Lisbeth eins mikið og hún mögulega gat. Noomi átti auðvelt með að tengja sig við karakterinn Lisbeth Salander sem var í stöðugri baráttu og var utangátta. Noomi segir margt líkt með sér og Lisbeth. „Mér fannst ég aldrei vera hluti af neinu. Ég passaði aldrei inn í neinn hóp. Þegar ég var barn horfðu allir á Beverly Hills 90210 eða Baywatch og ég hugsaði með mér: Hvað í ósköpunum sjá þau í þessum þáttum? Mér var slétt sama og ég átti aðeins einn góðan vin. Í dag á ég fleiri vini en vanda valið gaumgæfilega. Ég eignaðist til dæmis fyrsta kærastann minn þegar ég var fjórtán," sagði Noomi. „Sem barn var ég hræðileg. Ég vildi bara vera drukkin. Þegar haldin voru partí var ég ein af strákunum og þambaði viskí. Ég vildi drekka endalaust og reyndi stöðugt að ögra mér og umhverfinu. Ganga skrefinu lengra." Noomi er stolt af því hvernig hún túlkaði Lisbeth en segir fjölskylduna sína ekki eins hamingjusama með breytingarnar sem fylgdu karakternum. Eiginmaður Noomi, Ola Rapace, og 6 ára gamall sonur þeirra, Lev, áttu erfitt með að venjast því hvernig hún breyttist í Lisbeth Salander útlitslega og að ekki sé minnst á þegar Noomi var enn í karakter heima við. Hún viðurkennir að hún átti það til að vera Lisbeth áfram þegar heim var komið eftir að tökum lauk en í dag eru allt orðið eðlilegt á ný. „Lisbeth var inn í mér í eitt og hálf ár. Eftir lokasenuna í upptökum var opnuð kampavínsflaska og ég sem verð aldrei veik, afsakaði mig og rauk inn á klósett þar sem ég ældi. Ég gat ekki hætt að æla. Ég gubbaði í klukkutíma. Það var eins og líkaminn væri að losa sig við Lisbeth. Hljómar illa en ég kvaddi hana á því andartaki," sagði Noomi.
Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Lífið Plokkað af krafti með forsetamaka Lífið Fleiri fréttir GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Sjá meira