Emilíana tengir upp á nýtt 6. janúar 2010 05:30 Emiliana Torrini er í Ástralíu og segist njóta þess í fyrsta skipti að semja nýja tónlist.
Tónleikaferð Emilíönu Torrini um heiminn heldur áfram á fullum dampi. Þessa dagana er hún í Ástralíu og spilar í Brisbane í kvöld. Í gærkvöldi lék hún á hinum fornfræga tónleikastað The Enmore í Sydney. Íslendingar eru með í för, Sigtryggur Baldursson, Pétur Hallgrímsson gítarleikari og Lay Low, sem spilar á bassa með Emilíönu og hitar auk þess upp. Tónleikarnir hafa gengið vel, allstaðar troðfullt og fólk syngur með í lögunum. Í nýlegu viðtali við Brisbane News sagði Emilíana að hún hefði nálgast lagasmíðar sínar á nýjan hátt upp á síðkastið. „Ég var í kvíðakasti og hálf brjáluð í hvert skipti sem ég var að semja á plöturnar mínar,“ sagði hún. „Ég spurði því sjálfa mig hvort ég vildi að þetta yrði svona í hvert skipti sem ég gerði nýja plötu. Ég fór þá leið að tengja upp á nýtt. Nú hefur viðhorf mitt breyst og ég get ekki hætt að semja ný lög.“ Nýja viðhorfið hefur gert það að verkum að hljómsveit Emilíönu kemur nú að lagasmíðunum, helst þó Simon Byrt hljómborðsleikari. Í heimsreisunni er verið að kynna nýjustu plötu Emilíönu, Me and Armini, sem kom út 2008. Frá Ástralíu liggur leiðin til Tókýó, Istanbúl og Prag og svo eru það þrennir tónleikar í Háskólabíói, 19. til 21. febrúar. Enn eru nokkrir miðar eftir á síðustu tónleikana. Þetta verða að öllum líkindum síðustu tónleikar Emilíönu í bili. Eftir allt spiliríið mun Emilíana að öllum líkindum hella sér af fullum þunga í að semja og taka upp næstu plötu. Það er hugur í henni og mjög líklega að hún komi út nýrri plötu á árinu. - drg
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Sjá meira