Lífið

Emilíana tengir upp á nýtt

Emiliana Torrini er í Ástralíu og segist njóta þess í fyrsta skipti að semja nýja tónlist.
Emiliana Torrini er í Ástralíu og segist njóta þess í fyrsta skipti að semja nýja tónlist.

Tónleikaferð Emilíönu Torrini um heiminn heldur áfram á fullum dampi. Þessa dagana er hún í Ástralíu og spilar í Brisbane í kvöld. Í gærkvöldi lék hún á hinum fornfræga tónleikastað The Enmore í Sydney. Íslendingar eru með í för, Sigtryggur Baldursson, Pétur Hallgrímsson gítarleikari og Lay Low, sem spilar á bassa með Emilíönu og hitar auk þess upp. Tónleikarnir hafa gengið vel, allstaðar troðfullt og fólk syngur með í lögunum.

Í nýlegu viðtali við Brisbane News sagði Emilíana að hún hefði nálgast lagasmíðar sínar á nýjan hátt upp á síðkastið. „Ég var í kvíðakasti og hálf brjáluð í hvert skipti sem ég var að semja á plöturnar mínar,“ sagði hún. „Ég spurði því sjálfa mig hvort ég vildi að þetta yrði svona í hvert skipti sem ég gerði nýja plötu. Ég fór þá leið að tengja upp á nýtt. Nú hefur viðhorf mitt breyst og ég get ekki hætt að semja ný lög.“

Nýja viðhorfið hefur gert það að verkum að hljómsveit Emilíönu kemur nú að lagasmíðunum, helst þó Simon Byrt hljómborðsleikari.

Í heimsreisunni er verið að kynna nýjustu plötu Emilíönu, Me and Armini, sem kom út 2008. Frá Ástralíu liggur leiðin til Tókýó, Istanbúl og Prag og svo eru það þrennir tónleikar í Háskólabíói, 19. til 21. febrúar. Enn eru nokkrir miðar eftir á síðustu tónleikana. Þetta verða að öllum líkindum síðustu tónleikar Emilíönu í bili. Eftir allt spiliríið mun Emilíana að öllum líkindum hella sér af fullum þunga í að semja og taka upp næstu plötu. Það er hugur í henni og mjög líklega að hún komi út nýrri plötu á árinu. - drg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.