Borgarahreyfingin þingmannslaus - Þráinn áfram óháður 20. september 2009 17:51 Þráinn Bertelsson verður áfram óháður þingmaður. „
Ég er búinn að gera honum ljóst að ég muni ekki breyta minni stöðu. Ég er ekki á leiðinni til baka og verð áfram óháður," segir þingmaðurinn Þráinn Bertelsson en formaður Borgarahreyfingarinnar ræddi við hann um helgina að snúa hugsanlega til baka sem þingmaður þeirra. Þráinn var afa ósáttur þegar samþingmenn hans innan Borgarahreyfingarinnar, þeir sömu og stofnuðu Hreyfinguna, sviku samkomulag um að kjósa með ESB á sumarþingi. Þess í stað reyndu þau að þvinga meirihlutann til að endurskoða Icesavemálið gegn atkvæði sínu um aðildarumsókn inn í ESB. Þá tók steininn endanlega úr þegar póstur samflokksmanns Þráins, Margrétar Tryggvadóttur þingkonu Borgarahreyfingarinnar, lak út. Þar var ýjað að því að Þráinn væri hugsanlega með heilabilun. Þráinn sagði sig úr þingflokknum og Margrét baðst síðar afsökunar á þingi á orðum sínum. Málin flæktust svo heldur betur þegar þingmennirnir þrír sem eftir voru í þingflokk Borgarahreyfingarinnar klufu sig úr grasrótinni og stofnuðu nýjan hreyfingu sem ber einfaldlega nafnið Hreyfingin. Í kjölfarið stendur Borgarahreyfingin eftir án þingmanna. Því leitaðist nýr formaður Borgarahreyfingarinnar, Valgeir Skagfjörð, eftir því að fá Þráinn til þess að gerast aftur þingmaður þeirra. Nú er ljóst að svo verður ekki. Þráinn hyggst halda áfram óháður. Borgarahreyfingin er því áhrifalaus á þingi eftir að hafa hlotið sérstaklega glæsta kosningu síðasta vor. Þráinn segir gott á milli sín og Valgeirs. Hann telur hann mætan og prýðilegan mann og bætir svo við: „Ég óska Borgarahreyfingunni alls góðs og til hamingju með það að vera laus við þremenningana."
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira