Bolað út af markaðnum með aðstoð eftirlitsaðila Magnús Már Guðmundsson skrifar 22. september 2009 11:30 Hrafn Hilmarsson.
Forsvarsmaður fyrirtækis sem annast löggildingar voga telur að samkeppnisaðilinn sé að bola fyrirtæki sínu út af markaðnum með aðstoð opinbers eftirlitsaðila. Hrafn Hilmarsson, forsvarsmaður Löggildingar, segir að Frumherji hafi eitt fyrirtækja séð um löggildingar voga fyrir Neytendastofu frá árinu 1997 eða allt þar til Löggilding fékk starfsleyfi í júlí í sumar. Hrafn er fyrrverandi starfsmaður og tæknistjóri hjá Frumherja. Löggilding og Frumherji bjóða bæði upp á löggildingar á vogum en í löggildingu felst að prófa vogir með þyngdarlóðum til að staðfesta að þær vinni rétt og að frávik séu innan marka. Fyrirtæki sem láta löggilda vogir eru þau sem nota vogir við sölu, kaup eða til að ákvarða bónusa í starfsemi sinni.Aðstoð frá Neytendastofu „Frumherji hegðar sér hinsvegar enn gagnvart viðskiptavinum eins og þeir séu einir um að veita þjónustuna. Þeir ganga inn í fyrirtæki og segjast vera komnir til að löggilda en bjóða ekki þjónustu sína, en löggildingar eru jú lögboðnar," segir Hrafn og gagnrýnir að gjaldskrá Frumherja liggi ekki fyrir eins og reglur kveði á um. Þá segir Hrafn Frumherja hafa um nokkurn tíma verið að fá að láni lóð frá Neytendastofu til að löggilda vogir. Eftir að Löggilding kom til sögunnar hafi Frumherji verið með átak í gangi og keppst við að fara fyrirtæki og löggilda. „Með lánslóðunum geta Frumherjamenn að haft tvö gengi löggildingarmanna í gangi," segir Hrafn. Hann segir að lóðin kosti rúmlega þrjár milljónir króna og það sé há upphæð fyrir lítið fyrirtæki. Hrafn gagnrýnir harðlega að lóð í eigu eftirlitsaðilans, Neytendastofu, séu notuð í samkeppni við Löggildingu. Samkeppnisstaðan skekkist og fyrirtæki sitt verði fyrir fjárhagstjóni. Eðlilegra hefði verið að Neytendastofa hefði tekið lóðin úr vörslu Frumherja. Hrafn segir að Neytendastofa hafi viðurkennt að ekki sé eðlilegt að lána lóðin við núverandi aðstæður og upplýstu Löggildingu um að þau hefðu verið innkölluð. Aftur á móti fullyrðir Hrafn að lóðin séu enn hjá Frumherja. Mikið fjárhagstjón „Nú er ég ekki að halda því fram að Neytendastofa sé viljandi að gera Löggildingu erfitt fyrir en það kemur á sama stað niður hvort hún er að vinna með Frumherja eða hvort þetta er sofandaháttur, fjárhagstjónið er jafnmikið," segir Hrafn Hrafn segir að lögfræðingur Löggildingar hafi skrifað bréf til Neytendastofu og Samkeppniseftirlitsins þar sem gerðar eru athugasemdir við vinnubrögð Frumherja og Neytendastofu.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira