Innlent

Íslendingurinn í vélinni var búsettur í Brasilíu

Breki Logason skrifar

Íslendingurinn sem var um borð í Airbus farþegaflugvél Air France sem saknað er heitir Helge Gustafsson. Hann bjó lengst af í Noregi en flutti til Brasilíu fyrir fimm árum síðan. Þar starfaði hann hjá norska fyrirtækinu FMC Technologies og á þar konu og barn. Fyrir á hann tvö börn í Noregi. Helge er fæddur þann 15.desember árið 1964.

Vélin var sem kunnugt er á leið frá Rio de Janero til Parísar þegar hún hvarf af ratsjám. Vélin flaug inn í ókyrrðarsvæði áður en samband við hana rofnaði en klukkan 4:15 að frönskum tíma bárust flugstjórnarmönnum í París sjálfvirk skilaboð frá viðhaldstölvum þotunnar þar sem greint var frá því að einhver af kerfum hennar væru í ólagi og virkuðu ekki sem skyldi.

Skip og flugvélar frá Brasilíu, Spáni, Senegal og Frakklandi taka þátt í leitinni auk þess sem Bandaríkjamenn leita með aðstoð gervihnatta.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×