Fá milljóna bakreikninga vegna kaupréttarsamninga 15. september 2009 05:00 Skúli Eggert Þórðarson
Ríkisskattstjóri endurskoðar nú álagningu opinberra gjalda á alla sölu- og kaupréttarsamninga sem gerðir hafa verið undanfarin ár. „Þeir sem eru með kauprétti eða sölurétti hafa oftast fært ávinninginn sem fjármagnstekjur. Við lítum svo á að þetta séu ekkert annað en launatekjur," sagði Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri við Fréttablaðið. „Það er launþegasamband milli þeirra aðila sem gera samninginn." Hann segir að ríkið hafi verið hlunnfarið um skatttekjur sem nemi að minnsta kosti hundruðum milljóna króna. Algengt er að vanframtaldar tekjur séu á bilinu tuttugu til fjörutíu milljónir króna í hverju máli, segir Skúli Eggert. Í stað þess að greiða 7,4 til 14,8 milljónir í tekjuskatt og útsvar hafi menn greitt tvær til fjórar milljónir króna í fjármagnstekjuskatt. Þótt flestir hafi staðið þannig að verki hafa sumir talið fram launatekjur og greitt tekjuskatt og útsvar, að sögn Skúla Eggerts. Skúli Eggert segir að flestir þeir sem fengu kaupréttarsamning hafi unnið hjá fjármálastofnunum og stærri fyrirtækjum. „Þetta eru tugir eða hundruð manna," segir hann. Tekjum hafi ekki verið leynt heldur voru þær ranglega taldar fram sem fjármagnstekjur en ekki launatekjur. Skúli Eggert segist hvorki hafa handbærar tölur um fjölda málanna né nákvæmar tölur um þær fjárhæðir sem séu í húfi fyrir ríkið og sveitarfélögin. Hann segir að hundruð milljóna króna sé mjög varlega áætlað. Aðgerðir skattyfirvalda vegna þessa eru nú komnar í fullan gang. Yfirskattanefnd hefur þegar fjallað um eitt mál af þessu tagi og staðfesti skilning ríkisskattstjóra. Þar er um að ræða mann sem skatturinn krefur um þrjátíu til fimmtíu milljónir króna. Sá hefur vísað máli sínu til dómstóla. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hve langt aftur í tímann þessi skoðun mun ná. Ríkisskattstjóri hefur heimild til að kanna mál af þessu tagi allt að sex ár aftur í tímann.
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Sjá meira