Innlent

Neitaði læknisaðstoð eftir að hafa fengið stól í höfuðið

Lögreglan.
Lögreglan.

Fjórtán líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu.

Helmingur þeirra, eða sjö, áttu sér stað í miðborginni. Hinar í eða við heimahús á ýmsum stöðum í borginni.

Flestar líkamsárásanna voru minniháttar og einhverjir fóru heim með glóðarauga eða brotnar tennur eftir skemmtanir næturinnar.

Af þeim sem voru fluttir á slysadeild má nefna karl á fertugsaldri sem var barinn í höfuðið með stól.

Í fyrstu neitaði maðurinn alfarið að fara undir læknishendur en lét sér síðan segjast eftir miklar fortölur.

Þá var karl á þrítugsaldri sleginn í andlitið með flösku en hinn slasaði var mjög æstur þegar lögreglan kom á vettvang.

Fór svo að hann var handjárnaður svo hægt væri að koma honum á slysadeild en þar var gert að sárum hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×