Erlent

Nígeríska lögreglan leitar að nítján stjórnendum fjármálafyrirtækja

Sanusi Lamido Aminu Sanusi, seðlabankastjóri Nígeríu, dældi tæpum þremur milljörðum evra í fjármálafyrirtæki til að varna þeim frá gjaldþroti.
Sanusi Lamido Aminu Sanusi, seðlabankastjóri Nígeríu, dældi tæpum þremur milljörðum evra í fjármálafyrirtæki til að varna þeim frá gjaldþroti. Mynd/ AFP

Nígeríska spillingarlögreglan sagði á fimmtudag að hún leitaði nú 19 fyrrum stjórnenda fimm fjármálafyrirtækja, eftir að ríkið þurfti að leggja um 2,6 milljarða dala til að bjarga fyrirtækunum.

Nú þegar hafa forstjórar tveggja þessara fyrirtækja verið færðir til yfirheyrslna, en leitað er að þremur þeirra ásamt fjórtán öðrum stjórnendum, samkvæmt efnahagsbrotadeild nígeríska ríkisins.

Óhætt er að segja að Nígeríumenn hafi hraðar hendur við að draga menn til ábyrgðar vegna bankahrunsins þar í landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×