Innlent

Erill hjá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum

Töluverður erill hefur verið hjá slökkvi- og sjúkraliðinu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Slökkvibílar hafa verið kallaðir út fjórum sinnum. Í einu tilfellinu var um vatnsleka að ræða en í þremur tilfellum hafði komið upp aðstæður þar sem reykræsta þurfti húsnæði. Í öllum tilfellum var þó um minniháttar atvik að ræða. Þá hafa sjúkraflutningamenn farið í 42 flutninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×