VG vill að Reykjavíkurborg endurheimti Fríkirkjuveg 11 19. maí 2009 23:39 Fríkirkjuvegur 11 var seldur Novator. Mynd/ Vilhelm.
Engin starfsemi virðist vera í Fríkirkjuvegi 11 og áhyggjur eru af því að það liggi undir skemmdum, segir í bókun sem borgarfulltrúar VG lögðu fram á borgarstjórnarfundi í dag. Húsið hefur verið í eigu Novators, félags í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, í ellefu mánuði. Borgarfulltrúar VG segja það vera einlæga von sína að Fríkirkjuvegur 11, sem og aðrar opinberar eignir sem auðmenn hafi notað ímyndað fjármagn til að kaupa, komist sem fyrst í hendur almennings aftur. „Nú er liðið rétt rúmt ár síðan borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðismanna og F-lista þröngvaði í gegn einum fáheyrðasta sölusamningi borgarsögunnar, sölunni á Fríkirkjuvegi 11. Voldugustu auðjöfrar borgarinnar, menn sem töldu sig vera í þann mund að eignast stóran hluta miðbæjarins sölsuðu þar með undir sig vænan skerf af Tjarnarsvæðinu. Þá hafði þetta umdeilda mál velkst um í borgarkerfinu í um 18 mánuði og tillögur voru margoft lagðar fram í borgarráði. Á tímabili stóð til að afhenda auðmönnunum allan Hallargarðinn til eignar. Setja „viðhafnaraðkomu" að húsinu frá Fríkirkjuvegi og heimila tímabundnar lokanir með tilheyrandi öryggisaðgerðum, bæri „tigna gesti" að garði. Það var fyrir einarða andstöðu VG og svo Hollvina Hallargarðsins að þessu tókst að forða. En eftir sem áður urðu málalok þau að auðmönnunum var selt húsið og 900 fermetra lóð. Þessu til viðbótar fengu þeir gerðið á bak við húsið, leyfi til framkvæmda í þeim hluta garðsins sem telst almannarými á og kvaðir voru settar neitunarvald þeim til handa á öllum breytingum í Hallargarðinum," segir í bókuninni.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira