Vigdís veitti verðlaun á degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2009 23:26 Marta Guðjónsdóttir, formaður nefndar um íslenskuverðlaun menntaráðs, Vígdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti og verndari verðlaunanna ásamt hluta af verðlaunahöfum.
Hátt í sjötíu grunnskólanemar í Reykjavík tóku við íslenskuverðlaunum menntaráðs við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag á degi íslenskrar tungu. Verndari verðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, en markmið þeirra er að auka áhuga grunnskólanema á móðurmálinu og hvetja þá til framfara í tjáningu talaðs máls og ritaðs. Marta Guðjónsdóttir, formaður nefndar um íslenskuverðlaun menntaráðs, setti athöfnina en að því loknu hófst hátíðardagskrá með ávarpi Vigdísar, tónlistaratriðum grunnskólanema og samsöng, að fram kemur í tilkynningu. Þar segir jafnframt að grunnskólanemarnir sem tóku við verðlaunum að þessu sinni hafi skarað fram úr á ýmsa vegu, í lestrarfærni, skapandi skrifum, ljóðasmíði og framsögn. Nokkrir þeirra eiga annað móðurmál en íslensku en hafa sýnt miklar framfarir í íslenskunámi og tjáningu. Meðal verðlaunahafa eru fjórir drengir í Foldaskóla sem gerðu stuttmynd upp úr Hrafnkels sögu Freysgoða, ungir bókaormar og sagnameistarar. Allir fengu til eignar veglegan verðlaunagrip úr gleri sem hannaður er af Dröfn Guðmundsdóttur myndhöggvara.
Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent Fleiri fréttir Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Sjá meira