Innlent

Milta sögukennara rofnaði í fjársöfnun

Hér sjást Lárus Jón og Kristín Sveinsdóttir afhenda starfsmönnum BUGL ávísun upp á 350 þúsund krónur. Síðan hafa tugir þúsunda bæst við.
Hér sjást Lárus Jón og Kristín Sveinsdóttir afhenda starfsmönnum BUGL ávísun upp á 350 þúsund krónur. Síðan hafa tugir þúsunda bæst við.
Nemendum við Menntaskólann í Hamrahlíð var brugðið á fimmtudag þegar uppátæki þeirra til fjársöfnunar fyrir Barna- og unglingageðdeild Landspítalans leiddi til þess að ungur sagnfræðikennari, Karl Jóhann Garðarsson, þurfti að leggjast inn á gjörgæsludeild með rofið milta.

Nemendafélag skólans stóð fyrir söfnuninni í síðustu viku og var fé heitið á ýmis uppátæki, til dæmis reiptog við rektor. „Og þeir voru þrír sem höfðu mig,“ segir Lárus H. Bjarnason rektor. Þá ákvað Unnsteinn Manuel Stefánsson, söngvari hljómsveitarinnar Retro Stefson, að aflita á sér hárið ef 25 þúsund krónur myndu safnast fyrir því, og Gettu betur-kempan Ingi Þór Óskarsson hét því að bjóða spyrlinum Evu Maríu Jónsdóttur á stefnumót ef 12 þúsund krónur myndu safnast.

Síðast uppátækjanna var að Karl Jóhann, sem er þrautþjálfaður í bardagalistinni taekwondo, klæddi sig í þartilgerða brynju með aflskynjurum og bauð nemendum síðan að sparka í sig sem mest þeir máttu gegn 500 króna greiðslu. Þeir sem spörkuðu fastast hlytu sigur og ynnu til verðlauna.

Í fyrstu benti allt til þess að viðburðurinn hefði heppnast mjög vel. Þegar líða tók á daginn fór Karl hins vegar að kenna sér meins í síðunni og var í kjölfarið fluttur á spítala með innvortis blæðingar úr milta.

Fréttablaðið náði tali af Karli á spítalanum í gær. Hann sagði að sér liði ágætlega og væri að braggast en baðst að öðru leyti undan viðtali.

„Þetta kom öllum á óvart og okkur þótti þetta mjög leiðinlegt í nemendastjórninni að þessi annars vel heppnaða vika myndi enda svona leiðinlega,“ segir Lárus Jón Björnsson, formaður nemendafélagsins. Stjórnin heimsótti Karl á laugardag og segir Lárus að meiðsl hans séu töluvert minni en óttast var í fyrstu.

Alls safnaðist tæplega hálf milljón króna fyrir BUGL á þessum fjórum dögum. - sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×