Sport

Þriðja jafntefli Crewe í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Þórðarson, stjóri Crewe.
Guðjón Þórðarson, stjóri Crewe. Nordic Photos / Getty Images

Crewe, lið Guðjóns Þórðarsonar, gerði í dag 1-1 jafntefli við Oldham á útivelli þar sem jöfnunarmarkið kom á 89. mínútu leiksins.

Það var Byron Moore sem jafnaði metin fyrir Crewe eftir að Ruben Hazell kom Oldham yfir á 41. mínútu. Gylfi Sigurðsson lék allan leikinn í liði Crewe.

Þetta var þriðja jafntefli Crewe í röð og það fjórða í síðustu fimm leikjum liðsins.

Crewe er nú í nítjánda stæi deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti og hafa því jafnteflin reynst afar dýrmæt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×