Innbrotaalda: Frönsk nýgift hjón rænd í Grjótaþorpinu Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 26. júní 2009 21:31 Örn Ægisson á húsið sem brotist var inn í. Mynd/ Daníel Rúnarsson „
Það er búið að brjótast inn í tvö hús hérna á tveimur tímum," segir Örn Ægisson, íbúi í Grjótaþorpi. Laust eftir klukkan fimm í dag var brotist inn í hús í eigu Arnar en í því dvelja hjón frá Frakklandi sem eru hér á landi í brúðkaupsferð. Þjófurinn náði að stela um þrjúhundruð þúsund krónum af fólkinu ásamt tölvu, skartgripum, myndavél og síma. „Þau komu í gær og eru að fara að keyra hringinn í kringum landið á morgun," segir Örn en einnig var brotist inn í bílskúr í Grjótaþorpinu fyrr í dag. „Hann hefur líklegast brotist þangað inn meðan lögreglan var hjá mér að taka fingraför." Örn segir innbrot í hverfinu nánast daglegt brauð. „Ég hugsa að það sé búið að brjótast inn í hvert einasta hús í hverfinu." Sjálfur hefur hann lent í því oftar en einu sinni að brotist sé inn til hans en sjálfur býr hann í öðru húsi í Grjótaþorpinu sem stendur við hlið þess sem brotist var inn í. Í fyrra var brotist inn í húsið sem frönsku hjónin dvelja í og segist Örn sannfærður um að þar hafi verið sami maður að verki. Örn telur sig hafa heyrt þegar innbrotsþjófurinn fór um garðhlið hússins. „Ég heyrði ískra í hliðinu en hélt að þetta væru bara hjónin að koma heim. Síðan heyri ég að hliðinu er lokað. Tíu mínútum síðar koma hjónin heim," segir Örn og er miður sín vegna frönsku hjónanna.
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira