Níu lykilmenn Grindavíkur í sóttkví með einkenni svínaflensu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 13. ágúst 2009 13:25 Það eru mikil veikindi í herbúðum Grindavíkur. Mynd/Vilhelm
Ástandið hjá knattspyrnuliði Grindavíkur er ekki gott en alls liggja níu leikmenn liðsins í rúminu veikir. Þeir eru þess utan með einkenni svínaflensu þannig að þeim er haldið í sóttkví þar til úr fæst skorið hvort þeir séu með svínaflensu eður ei. Flestir þessara leikmanna eru algjörir lykilmenn í liði Grindavíkur. Leikmennirnir sem eru veikir eru Scott Ramsay, Óli Stefán Flóventsson, Zoran Stamenic, Orri Freyr Hjaltalín, Óli Baldur Bjarnason, Páll Guðmundsson, Bogi Rafn Einarsson, Emil Daði Símonarson og Norðmaðurinn Tor Erik Moen sem gekk í raðir Grindavíkur á dögunum. „Það er einhver pest í gangi og þeir eru allir nýlagstir í rúmið. Þetta hefur verið svolítið skrítið því sumir hafa veikst mjög skyndilega og það illa. Það er eitthvað misjafnt hvort allir séu með einkenni svínaflensunnar en menn verða í sóttkví þar til niðurstöður liggja fyrir," sagði Ingvar Guðjónsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Grindavíkur, við Vísi. Að sögn Ingvars hafa ekki allir leikmennirnir enn gefið sýni en þeir sem hafa gert það fá niðurstöðu í dag eða á morgun. Á meðan verður gætt ítrustu varúðar. Grindavík á leik næsta sunnudag gegn ÍBV og leikur eina þrjá leiki á sjö dögum. „Við höfum látið KSÍ vita af málinu en þeir hafa ekkert gefið út á hvort við fáum einhvern liðleika ef á þarf að halda. Það er samt ekki gott fyrir okkur því við eigum þegar einn frestaðan leik inni. Að sama skapi er eflaust ekkert vinsælt að við séum að mæta í leiki nema það sé ljóst hvað sé að okkar leikmönnum," sagði Ingvar. Þess má síðan geta að aðeins sjö leikmenn voru á æfingu hjá Grindavík í gær.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Sjá meira