Innlent

Greina ekki verra viðmót í kreppunni

Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, segir nýlega rannsókn sýna að innflytjendum hér á landi hefur gengið illa að undanförnu að fá vinnu og að þeir óttist framtíðina batni efnahagsástandið ekki á næstunni. Mikill meirihluti innflytjenda telja viðmót til sín ekki hafa breyst eftir að kreppan skall á. Rauði krossinn stendur fyrir málþingi á eftir hádegi um stöðu innflytjenda á erfiðleikatímum undir yfirskriftinni: „Eru innflytjendur afgangsstærð?"

Kristján segir að málþinginu muni meðal annars Hallfríður Þórarinsdóttir forstöðumaður MIRRA, Miðstöðvar InnflytjendaRannsókna ReykjavíkurAkademíunni, flytja erindi um nýlega rannsókn þar sem rætt var við 57 innflytjendur af mismunandi uppruna búsettir í öllum landshlutum.

„Mikill meirihluti viðmælenda taldi sig greina lítinn sem engan mun á viðmóti til þeirra eftir að kreppan skall á og sumir töldu jafnvel of snemmt að dæma um slíkt," segir Kristján en bendir á að þó viðmælendurnir hafi ekki upplifað persónulega neinar breytingar á viðmóti Íslendinga hefðu þeir engu að síður skynjað breytingar til hins verra í umræðunni í samfélaginu sem sneri að fólki af erlendum uppruna. Innflytjendur óttist því framhaldið fari efnahagsástandið ekki að batna.

Kristján segir nokkra viðmælendur í rannsókninni hafa sagt nær vonlaust að fá vinnu því Íslendingar gengju fyrir í þau störf sem í boði eru. „Hjá viðmælendum frá löndum utan ESB mátti greina mikinn ótta við að verða vísað úr landi við atvinnumissi þar sem réttur þeirra til þess að dvelja í landinu er takmarkaður og enga félagslega aðstoð er að hafa fyrir það."

Kristján segir mikilvægt að þörfum allra sem búa hér á landi sé sinnt óháð því hvort þeir séu innfæddir eða innflytjendur.

Málþingið hefst klukkan 13:30 og fer í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu. Auk Kristjáns og Hallfríðar flytja eftirtaldir erindi: Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, Anna Kristinsdóttir mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar, Sigríður Herdís Pálsdóttir verkefnisstjóri hjá Rauða krossi Íslands og María Elvira Mendez Pinedo lögfræðingur og dósent við Háskóla Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×