Þegar rýnt er í sölutölur á plötum í Bretlandi og Bandaríkjunum kemur margt athyglisvert í ljós. Sala á breiðskífum dregst saman í Bandaríkjunum um 14,4 prósent. Samtals seldust 428,4 milljónir breiðskífna miðað við 500,5 milljónir árið 2007. Plata Lil Wayne seldist í 2,88 milljónum eintaka og er þetta í fyrsta skipti síðan mælingar Nielsen SoundScan hófust árið 1991 að söluhæsta plata ársins selst í minna en þremur milljónum eintaka. Plata Coldplay, sem er í öðru sæti, seldist í 2,15 milljónum eintaka.
Sala á tónlist er að breytast í Bandaríkjunum. Sala á CD-diskum minnkar um 19,7 prósent á meðan sala á albúmum í niðurhali eykst um 5,4 prósent. Nú er diskasala 84 prósent af heildinni og niðurhal 15,4 prósent. Það sem vantar upp á, 0,6 prósentin, er sala á vínyl-plötum. Samtals seldust 1,8 milljónir albúma á vínyl. Þetta er mesta sala á gamla góða vínylnum síðan mælingar hófust.

drgunni@frettabladid.is