Ólafur Ragnar í Abu Dhabi 23. nóvember 2009 16:34 Ólafur Ragnar skoðar framkvæmdir í Masdar borg. Mynd/forseti.is
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sat um helgina fund dómnefndar Zayed orkuverðlaunanna en þau eru meðal veglegustu verðlauna veraldar, veitt fyrir nýjungar og forystu á vettvangi hreinnar orku. Fundurinn var haldinn í Abu Dhabi enda eru verðlaunin kennd við fyrrum leiðtoga landsins. Þau verða afhent á Heimsþingi um orkumál framtíðar sem haldið verður í Abu Dhabi í janúar næstkomandi, að fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu. Auk forseta Íslands skipa dómnefndina dr. R. K. Pachauri, formaður Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna (IPCC), Susan Hockfield rektor MIT háskólans í Bandaríkjunum, Norman Foster arkitekt og hönnuður fjölmargra þekktra bygginga víða um heim, Browne lávarður og fyrrum forstjóri BP og Helene Pelosse framkvæmdastjóri hinnar nýju alþjóðastofnunar endurnýjanlegrar orku, IRENA.Fyrsta mengunarlausa borg veraldar Þá heimsótti forseti byggingarsvæði hinnar væntanlegu Masdar borgar sem ætlað er að verða fyrsta mengunarlausa borg veraldar. Útblástur koltvísýrings verður enginn og allur úrgangur endurunninn. Sveit íslenskra sérfræðinga vinnur nú að undirbúningi borana eftir jarðhita á borgarsvæðinu, en ætlunin er að nýta jarðhita til að knýja loftkælingu borgarinnar. Fram kemur í tilkynningunni að forsetinn hafi átt ítarlegar viðræður við íslensku sérfræðinganna sem starfa að þessu jarðhitaverkefni en það er á vegum fyrirtækisins Reykjavik Geothermal. Skoðaði forseti hið væntanlega borsvæði þar sem nú þegar er búið að reisa undirstöður borsins en áformað er að hefja boranir í næsta mánuði. Að sögn fulltrúa Reykjavik Geothermal verða þetta fyrstu jarðhitaboranirnar í þessum heimshluta.Fundaði með Sheik Mohamed bin Zayed Al Nahyan Fyrr í dag átti Ólafur Ragnar fund með þjóðarleiðtoga Abu Dhabi, Sheik Mohamed bin Zayed Al Nahyan. Í tilkynningu segir að hann hafi lýst sérstakri ánægju með störf íslenskra sérfræðinga, verkfræðinga og vísindamanna í Abu Dhabi. Miklar vonir væru bundnar við jarðhitaboranir í hinni nýju Masdar borg en árangur þeirra skipti sköpum fyrir vistvænan grundvöll hennar. Loks hitti forsetinn í morgun starfsmenn íslensku verkfræðistofunnar Eflu, en verkfræðingar og tæknifræðingar á hennar vegum vinna nú við byggingu nýs álvers í Abu Dhabi, EMAL, sem verður meðal stærstu álvera veraldar. Eflumenn nýta sér á þessum vettvangi reynslu og þekkingu sem þeir hafa aflað sér á Íslandi á undanförnum árum.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Erlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Fleiri fréttir „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdregnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Sjá meira