Ljósaganga gegn kynbundnu ofbeldi 23. nóvember 2009 20:14 Sólfarið og Friðarsúlan. Mynd/ Anton Brink.
Þann 25. nóvember næstkomandi verður haldin ganga sem markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundu ofbeldi undir yfirskriftinni: Leggðu þitt af mörkum - Farðu fram á aðgerðir: Saman getum við bundið enda á ofbeldi gegn konum! Þá munu mannréttindasamtök og kvennahreyfingin á Íslandi standa fyrir ljósagöngu til að vekja athygli á ofbeldi gegn konum og hvetja til aðgerða. Lagt verður af stað frá Þjóðmenningarhúsi kl. 19:00 og gengið niður að Sólfarinu þar sem Friðarsúlan verður tendruð kl. 19:45. Í fararbroddi verða kyndilberar sem láta sig málefnið varða, m.a. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, Jón Páll Eyjólfsson, leikskáld og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, höfundur bókarinnar Ofbeldi á Íslandi á mannamáli. Yoko Ono sendir Friðarkveðju í tilefni dagsins og Ljósagöngunnar. Þetta er í fyrsta sinn sem ljós Friðarsúlunnar er tileinkað sérstöku málefni: Alþjóðadegi um afnám ofbeldis gegn konum. Í tilkynningu frá Mannréttindaskrifstofu segir: Friðarsúlan er ákall um frið - ákall um heim án ofbeldis. Útbreiddasta ofbeldið á heimsvísu er kynbundið ofbeldi gegn konum og stúlkum. Kynfæralimlesting, kynferðisofbeldi, „heiðursmorð" og ofbeldi á heimilum eru meðal þess sem milljónir kvenna um allan heim verða fyrir dag hvern. Enda þótt staða íslenskra kvenna sé sterk á mörgum sviðum þá er kynbundið ofbeldi alvarlegt vandamál hér á landi. Árið 2008 leituðu 547 einstaklingar til Stígamóta en frá upphafi samtakanna til ársloka 2008 hafa alls 5,279 manns leitað þar aðstoðar. 530 konur hafa leitað til Kvennaathvarfs á árinu 2009 komur til samtakanna eru frá upphafi um 5800. Friður ríkir ekki í raun fyrr en búið er að uppræta ofbeldi gegn konum í öllum sínum birtingarmyndum. Þann 25. nóvember verður slökkt á Friðarsúlunni kl. 19:30 og síðan kveikt á henni aftur kl. 19:45 til að vekja á táknrænan hátt athygli á þeim myrku mannréttindabrotum sem felast í ofbeldi gegn konum - ofbeldi sem þrífst í skjóli kynjamisréttis, skammar og þagnar. Ljós friðarsúlunnar táknar von um frið og minnir okkur á hvað við getum lagt af mörkum hvert og eitt til að uppræta kynbundið ofbeldi.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira