Bíræfinn þjófur stal barnavagni 16. september 2009 05:45 Aðalheiður ásamt börnunum sínum.fréttablaðið/stefán „
Ég á ekki orð yfir að nokkur skuli stela vagni frá barni. Þetta er ótrúlegt,“ segir Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Barnavagni tíu mánaða sonar hennar og Adams Bjarka Ægissonar var stolið fyrir utan heimili þeirra á Holtsgötu í fyrrakvöld. Að sögn Aðalheiðar var vagninn horfinn þegar Adam hugðist setja hann inn í geymslu klukkan níu um kvöldið. „Enginn nágrannanna sá neitt. Þjófurinn hefur greinilega verið á höttunum eftir barnavagni, því hann snerti ekki við glænýju grilli, hjóli og hlaupahjóli sem líka stóðu fyrir utan. Þetta er mjög rólegt hverfi og við bjuggumst alls ekki við þessu,“ segir Aðalheiður. Hrafnkell Ingi, tíu mánaða gamall sonur hjónanna, er hjartveikur. „Hann á sína erfiðu daga vegna veikindanna. Þessi vagn hefur bjargað okkur alveg, því í honum hvílist Hrafnkell vel og sefur kannski í þrjá klukkutíma samfleytt. Í dag [í gær] höfum við reynt að láta hann sofa inni, en það hefur alls ekki gengið vel.“ Aðalheiður keypti vagninn, sem er svartur og grár Brio-kerruvagn, árið 2007 þegar dóttir hennar fæddist. „Þá kostaði hann 80.000 krónur en kostar núna 145.000, og bara kerrupokinn kostar 20.000 í viðbót. Við fáum tjónið bætt, en konan sem ég talaði við hjá tryggingarfélaginu sagðist því miður hafa heyrt fleiri dæmi um barnavagnaþjófnaði að undanförnu,“ segir Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira